Velkomin á heimasíðu LandArt.
LandArt fasteigna- og leigumiðlun. LandArt er staðsett í Ármúla 36, 2. hæð (inngangur v/Selmúla). Sími 588 5500. Fasteigna- og leigumiðlunin opnaði formlega í byrjun júlí 2011. Ef þú vilt selja fasteign, ert leigutaki eða leigusali þá finnur þú góða og persónulega þjónustu hjá okkur.
Almennur opnunartími sími 588 5500
Vantar allar gerðir eigna á skrá
mánudagar - fimmtudagar kl. 10 - 17
föstudagar kl. 10 - 16
laugardaga og sunnudaga lokað
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Ef þú ert í söluhugleiðingum þá hafðu samband.
Mikilvægt er að kaup- og söluferli fasteigna lúti að þeim lögum og reglum sem gilda. Vanda þarf til alls ferlisins allt frá skráningu eignarinnar, gagnaöflunar, tilboðsgerðar, samnings og til enda afsals. Hjá LandArt starfar úrval fólks með menntun og reynslu og við tökum vel á móti þér og förum í gegnum ferlið með þér af vandvirkni.
Ef þú ert í söluhugleiðingum þá hafðu samband við okkur, en hér sérðu bein símanúmer okkar ásamt netföngum.
Erum alltaf með kaupendur á skrá hjá okkur sem eru að leita að ákveðnum eignum sem og eignir sem ekki eru á netinu. Vantar allar gerðir eigna á skrá. Aðstoðum fólk með yfirveðsettar eignir við að selja og semja um rest.
Þú getur einnig sem leigusali eða leigutaki pantað ráðgjafaviðtal varðandi leiguferlið, réttindi og skyldur aðila, fá aðstoð við að bregðast rétt við aðstæðum sem upp koma, vangoldinnar leigu, riftun, uppsögn o.s.frv. Ef ekki er brugðist rétt við aðstæðum hverju sinni geta aðilar misst réttindi eða áunnið sér skyldur sem ekki var ætlað.
Mikilvægt er að rétt og faglega sé staðið að undibúningi leigusamninga þannig að ekki sé stofnað til réttinda eða skyldna sem ekki var ætlað.
Þegar enginn samningur er gerður þá öðlast aðilar engu að síður öll þau réttindi og skyldur eins og samningur hafi verið gerður, en slíkur samningur túlkast sem ótímabundinn með 6 mánaða uppsagnafresti.
Ef hjá líður að leigjandi fari úr húsnæði sem gerður var tímabundinn samningur um, verður sjálfkrafa til ótímabundinn leigusamningur með 6 mánaða uppsagnafresti, eftir ákveðinn tíma. Ef úttekt á húsnæði fer ekki fram eða ekki er rétt staðið að áskorun geta aðilar misst réttindi.
LandArt leigumiðlun og ráðgjöf býður þér upp á 3 leiðir í ferlinu. 1 ráðgjafarviðtal, 2 ráðgjöf, undirbúning og uppsetning samnings, 3 leigumiðlunarferlið í heild. Þannig er hægt að velja um 3 leiðir og 3 verð allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Pantaðu á radgjof@landart.is eða hafðu samband í síma 895 0303 við Vilborgu G Hansen löggiltan leigumiðlara vilborg@landart.is
LandArt leigumiðlun býður upp á heildarlausnir fyrir verktaka og leigufélög.